Félag í ferðaþjónustu!-Bía VE og Súlli VE

Category: 
Undir 30 BT
Farþegabátar
Fyrirtæki
Type: 
Félag til sölu!
Annað
Til sölu félag í ferðaþjónustu stofnað í Vestmannaeyjum 2018, Seabirds and Cliff Adventures Tours ehf., sem á tvo báta Bía VE nr. 7877 og Súlla VE nr. 7847, ásamt 20 feta gámi fyrir búningaaðstöðu, klifurbúnað, sigbelti, og öðru tengdu ferðaþjónustu félagsins! Félagið á einnig bifreiðar. Vefsíða: www.saca.is. Skoðunarferðir við Heimaey. Fyrirtækið hefur skapað sér góðan orðstý eins og meðmæli inni á Tripadvisor t.d bera með sér. Áhugasamir hafið samband og fáið nánari upplýsingar! Upplýsingar um Bíu VE nr. 7877: Axopar 28 cabin smíðaður árið 2014. Mesta lengd 9.07m. Skráð lengd 8,67m. Breidd 2,82m. Br.tonn 6,63. Sumar haffæri fyrir hafsvæði A1. Farþegaleyfi fyrir 8 farþega fyrir utan tveggja manna áhöfn að sögn eiganda. Tvær utanborðsvélar af gerðinni Mercury Verado 200 hp. Bógskrúfa. Tólf manna gummíbjörgunarbátur fylgir. Vel útbúinn bátur. Upplýsingar um Súlla VE nr. 7847: Osprey Vibermax rib boat árg 2007 750. Hypalon gummítúbur. Mesta lengd 7.79m. Skráningarlengd 7,16m. Breidd 2,27 dýpt 0,98m. 3,94 br.tonn. Sumar haffæri fyrir hafsvæði A1. Leyfi til farþegaflutninga allt að 10 farþega fyrir utan áhöfn að sögn eiganda.
ISK
Location: 
Vestmannaeyjar

Tel.no.: +354 5622551.
Email: skip@batarogbunadur.is