Nýlegur gír, ný (jan´19) stýrisdæla og sjálfsskipting. Makrílbúnaður og rúllur. Sónar. Túrbína endurnýjuð 2015. Báturinn er keyrður á 6-7 mílum því hann eyðir litlu á þeim snúningi, getur þó verið keyrður hraðar. Fjórar DNG 6000 rúllur og eru um borð og eru í notkun núna á strandveiðunum og virka vel. Makrílbúnaður getur fylgt. Fiskikör í lest eru 4 x 600 lítra. Sónar eða Astik leitartæki um borð. Nýleg miðstöð til að hita í húsinu (olíumiðstöð). Vélin var tjúnuð niður þegar hún var sett í bátinn því hún var of öflug fyrir gírinn en hún hefur þess vegna aldrei verið í álagi og engin vandmál hafa komið upp með hana, bara skipt um túrbínu 2015. Báturinn hefur bara verið notaður í strandveiðikerfinu á Íslandi þannig að sum árin hefur þetta verið ansi lítil notkun jafnvel aðeins 6-8 daga í mánuði fjóra mánuði ársíns en alltaf geymdur í bás í Hafnarfirði og með hita bæði í vél og húsi. Nýlega málaður og er staðsettur í Kópavogi! Ofangreindar upplýsingar koma frá eiganda.